Deiliskipulag hesthúsa- og frístundasvæði, Siglufirði. Breyting

Málsnúmer 1108019

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 130. fundur - 02.02.2012

Breytingar hafa verið gerðar á deiliskipulagstillögu að hesthúsa- og frístundasvæði, Siglufirði þar sem fjárhúsalóðum við Lambafen hefur verið fækkað úr 6 í 3 lóðir og hesthúsalóðum við Faxafen fækkað úr 6 í 4 lóðir.  Gert er ráð fyrir að svæðin sem lóðirnar voru fjarlægðar af verði beitarhólf. 

Erindi samþykkt og tæknideild falið að senda það til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.