Umsókn um leyfi til útlitsbreytinga á fasteigninni Grundargötu 3, Siglufirði

Málsnúmer 1107037

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 118. fundur - 21.07.2011

Sótt er um leyfi til eftirfarandi breytinga á Grundargötu 3: gluggar á austurhlið jarðhæð verði færðir í upprunalegt horf, klæðning á norðurhlið verði fjarlægð og veggur múraður þess í stað, byggt verði upp í innskot á bakhlið hússins að vestan. Einn gluggi á þeirri hlið verður ofarlega með samskonar útlit og gluggi á norðurhlið, en múrað upp í rest.

Nefndin tekur vel í erindið en óskar eftir fullnægjandi teikningum.