Samkomulag um tillögu til skipulagsyfirvalda Fjallabyggðar að breytingu á lóðastærðum lóðanna Skútustíg 1 og Skútustíg 5, Saurbæjarás, Fjallabyggð

Málsnúmer 1106091

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 218. fundur - 21.06.2011

Fyrir bæjarráði liggja drög að samkomulagi til skipulagsyfirvalda Fjallabyggðar að breytingu á lóðastærðum lóðanna Skútustíg 1 og Skútustíg 5, Saurbæjarás, Fjallabyggð.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra að undirrita og vísa til skipulags- og umhverfisnefndar.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 120. fundur - 24.08.2011

Lögð er fram tillaga að breytingu á lóðastærðum lóðanna Skútustíg 1 (Lyngholt 143070) og Skútustíg 5, Saurbæjarás, þar sem lóð nr. 3 við Skútustíg fellur út og lóðirnar nr.1 og nr. 5 stækka um ca. helming.

Nefndin samþykkir erindið.