Hús við skíðasvæðið í Skarðsdal - ósk um kaup og flutning

Málsnúmer 1101010

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 197. fundur - 11.01.2011

Dúi J. Landmark óskar eftir því í tölvuskeyti sínu að fá keypt til flutnings timburhús, í eigu sveitarfélagsins, er stendur í brekkunni fyrir neðan skíðasvæðið í Skarðsdal.
Fáist til þess leyfi skipulagsyfirvalda ætlar hann að flytja húsið á lóðina á Þormóðsgötu 20 Siglufirði.
Bæjarráð samþykkir söluheimild fyrir húsið.