Umsókn um leyfi til að halda hænur og endur

Málsnúmer 1011012

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 102. fundur - 11.11.2010

Svala G. Lúðvíksdóttir óskar eftir leyfi til að hafa hænur og endur í garðhúsi sínu að Hvanneyrarbraut 6, Siglufirði.

Samþykkt er að umsóknin fari í grenndarkynningu eigendum eftirtalinna húseigna:  Hvanneyrarbraut 2, 3b og 5b, Túngata 9 og 11 og Eyrargata 25, 27 og 29.