Bygging salernisaðstöðu við Bungulyftu

Málsnúmer 1010078

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 188. fundur - 26.10.2010

Í erindi Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg er þess farið á leit við bæjaryfirvöld að sett verði upp salernisaðstaða við Bungulyftu í Skarðsdal fyrir þennan vetur.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar.