Gámur við Brimnes

Málsnúmer 1010019

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 100. fundur - 11.10.2010

Sigurjón Magnússon óskar eftir leyfi til að staðsetja geymslugám á lóð sinni ofan og austan við skemmuna á Brimnesi.  Fyrirhugað er að flytja gáminn frá Námuvegi 2 á Brimnes.

Nefndin samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs, innan þess tíma verður hlutaðeigandi að vera búin að finna varanlega lausn.