Skipulag hafnarsvæðis á Siglufirði - færsla á Snorragötu

Málsnúmer 1008105

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 26. fundur - 23.08.2010

Hafnarstjórn fór yfir nýjar tillögur að fyrirhugaðri færslu Snorragötu til austurs og lagfæringu á svæði fyrir framan Síldarminjasafnið og aðstöðu fyrir hótel á hafnarsvæðinu.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við framkomnar tillögur, en bendir á nauðsyn þess að gætt verði að aðstöðu fyrir löndun og viðlegu báta.