Matsblað vegna forgangsröðunar umsókna eftir félagslegu leiguhúsnæði í Fjallabyggð

Málsnúmer 1008076

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 44. fundur - 24.08.2010

Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti matsblað með stigagjöf og leiðbeiningum sem lagt verði til grundvallar við forgangsröðun um úthlutun félagslegra leiguíbúða í eigu Fjallabyggðar. Fær hver umsækjandi stig samkvæmt matsblaðinu og skal stigafjöldi vera ráðandi um forgangsröðun. Umsækjanda skal kynnt stigagjöfin og getur hann áfrýjað niðurstöðu starfsmanna til félagsmálanefndar telji hann á sig hallað.