Stækkun á véla/verkfærageymslu á jörðinni Kálfsá í Ólafsfirði

Málsnúmer 1005080

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 91. fundur - 02.06.2010

Sveinbjörn Þ. Sveinbjörnsson óskar eftir leyfi til að stækka véla/verkfærageymslu á jörðinni Kálfsá í Ólafsfirði.  Um er að ræða lengingu á húsinu um 7 metra til vesturs.  Stækkunin yrði í samræmi við núverandi húsnæði og byggingarefni það sama, þ.e. járnklædd timburgrind á steyptum sökkli.

Nefndin samþykkir erindið með fyrirvara um að skilað sé inn byggingarnefndarteikningum áður en framkvæmdir hefjast.