Sameining bókasafna í Fjallabyggð - tillögur bæjarstjóra og fræðslufulltrúa

Málsnúmer 1005010

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 169. fundur - 06.05.2010

Fyrir bæjarráði liggur tillaga bæjarstjóra og fræðslu- og menningarfulltrúa um sameiningu bókasafnanna á Siglufirði og í Ólafsfirði frá 1. september 2010. Lagt er til að auglýst verði 100% staða forstöðumanns með ráðningu frá 15. ágúst 2010 og að 50% forstöðumannastöður við bókasöfnin í Ólafsfirði og Siglufirði verði lagðar niður frá 1. september 2010. Drög að starfslýsingu forstöðumanns bóka- og skjalasafns Fjallabyggðar voru einnig kynnt.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.