Gangstéttarhellur á bílastæði við Suðurgötu 16

Málsnúmer 1002057

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 86. fundur - 24.02.2010

Jón Sæmundur Sigurjónsson óskar eftir að hellum sem komið var fyrir á bílastæði við Suðurgötu 16, Siglufirði verði nýttar eða fjarlægðar af stæðinu og stæðið hreinsað.

Nefndin harmar það hve hellurnar hafa verið lengi á stæðinu og mun sjá til þess að hellurnar verða fjarlægðar.