Samningur um akstur og urðun sorps frá Fjallabyggð

Málsnúmer 1001053

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 160. fundur - 12.02.2010

Fyrir bæjarráði liggja drög að samningi við Íslenska gámafélagið um urðun sorps sem fellur til frá heimilum og hefur verið flokkað til urðunar á gámasvæðum Fjallabyggðar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og felur bæjarstjóra að undirrita.