Málefni fatlaðra Fjallabyggð

Málsnúmer 1001044

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 38. fundur - 03.02.2010

Staðfest

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi stækkun starfssvæðis byggðasamlags SSNV um málefni fatlaðra, til Ólafsfjarðar.  Gert er ráð fyrir að gengið verði frá viðaukasamningi við núverandi þjónustusamning félags- og tryggingamálaráðuneytis og SSNV á næstu dögum.  Horft er til þess að viðaukasamningur vegna þjónustu í Ólafsfirði verði til eins árs þ.e. frá 1. janúar til 31. desember 2010.