Samningur um yfirbyggingu á slökkvibifreið

Málsnúmer 0810025

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 169. fundur - 06.05.2010

Fyrir bæjarráði liggur beiðni um fjárheimild vegna uppgjörs á kaupsamningi um yfirbyggingu á slökkvibíl, ásamt endurnýjun heimildar fyrra árs sem ekki var nýtt.

Bæjarráð samþykkir heimild að upphæð kr. 9.235.000 og vísar til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.