Tröllaslagur

Sönghópurinn Voces Thules og þríeykið Gadus Morhua með Eyjólf Eyjólfsson í broddi fylkingar flytja íslensk þjóðlög á sérlega fjörmikinn hátt. Leikið er á forn hljóðfæri, slegnar trumbur og sungið við raust. Félagar í Voces Thules eru Eggert Pálsson, Eyjólfur Eyjólfsson, Sigurður Halldórsson, Einar Jóhannesson, og Eiríkur Hreinn Helgason. Í Gadus Morhua syngja og leika Eyjólfur Eyjólfsson söngur, langspil, flauta,  Björk Níelsdóttir söngur, langspil og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir söngur, selló og barokkselló.