14.05.2019
Framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýs einbýlishús í Ólafsfirði. Er það í fyrsta sinn, síðan árið 1995, sem nýtt hús rís í Ólafsfirði. Um er að ræða byggingu einbýlishús við Marabyggð 43.
Lesa meira
14.05.2019
Fyrsta skemmtiferðaskipið sem hefur viðkomu á Siglufirði í sumar kom til hafnar í morgun. Um er að ræða skemmtiferðaskipið Ocean Diamond, sem Iceland Pro-Crusiers gerir út til siglinga hringinn í kringum Íslands.
Lesa meira
13.05.2019
Áhöfn Háskólalestarinnar slær upp Vísindaveislu í Menningarhúsinu Tjarnarborg laugardaginn 18. maí nk. frá kl. 12:00-16:00. Vísindaveislan er opin öllum og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna - börn og fullorðna.
Lesa meira
13.05.2019
Fimmtudaginn 16. maí 2019 kl. 17:00 opnar Eygló Harðardóttir sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Sýningin er opin til 2. júní og er opin daglega frá kl. 14:00 – 17:00.
Lesa meira
13.05.2019
Lokaskýrsla Blue Sail um þróun upplifana á Arctic Coast Way/Norðurstrandarleið hefur nú verið birt. Í skýrslunni er að finna samantekt á því starfi sem hefur verið unnið í tengslum við þróun upplifana, en sú vinna fór fram í fimm þrepum frá því í nóvember 2017 og fram í október 2018.
Lesa meira
10.05.2019
Opnun sýningarinnar Ólafsfjarðarvatn í Pálshúsi Strandgötu 4, Ólafsfirði laugardaginn 18. maí nk. kl. 14:00.
Þá er einnig opnuð listsýning Kristins E. Hrafnssonar í Pálshúsi.
Lesa meira
09.05.2019
Framkvæmdir eru að hefjast á endurnýjun Aðalgötu, milli Grundargötu og Tjarnargötu.
Tvístefna verður á Norðurgötu milli Aðalgötu og Eyrargötu á meðan á framkvæmdunum stendur með innkomu frá Eyrargötu sjá nánar á meðfylgjandi korti.
Áætluð verklok eru 30. júní 2019.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að verða við framkvæmdina.
Lesa meira
08.05.2019
Útvarpsstöðin Trölli.is mun útvarpa beint 174. fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar sem haldinn verður í Tjarnarborg Ólafsfirði, kl. 17:00 í dag 8. maí.
Lesa meira
08.05.2019
Þann 8. júní er Dagur hafsins; World Ocean Day og verður hann haldinn hátíðlegur um allan heim og líka í Fjallabyggð. Tilgangur þessa dags er að fagna og heiðra hafið og draga fram hversu mikilvægt er að passa hafið. Þennan sama dag verður Norðurstrandaleið; Arctic Coast Way opnuð formlega.
Lesa meira
06.05.2019
174. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnaborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði 8. maí 2019 kl. 17.00
Lesa meira