17.09.2021
Kjördeildir í bæjarfélaginu Fjallabyggð við Alþingiskosningarnar þann 25. september nk. verða tvær.
Kjördeild I í Ráðhúsi Fjallabyggðar, 2. hæð Gránugötu 24 Siglufirði kjósa íbúar Siglufjarðar.
Kjörfundur hefst kl. 10:00.
Í kjördeild II í húsi Menntaskólans á Tröllaskaga að Ægisgötu 13 í Ólafsfirði kjósa íbúar Ólafsfjarðar.
Kjörfundur hefst kl. 10:00.
Lesa meira
13.09.2021
Sundlaugin í Ólafsfirði verður lokuð í dag 13. september frá kl. 16:30 vegna viðgerðar á heitavatnslögn í bænum. Ræktin verður opin eins og venjulega til kl. 19:00.
Forstöðumaður íþróttamiðstöðva
Lesa meira
13.09.2021
Heitavatnslaust verður í Ólafsfirði milli 17:00 og 23:00 í dag mánudaginn 13. september Vegna vinnu við dreifikerfi verður LOKAÐ fyrir HEITT VATN í Ólafsfirði, sunnan við Ólafsveg og fram í Hólkot í dag mánudaginn 13. september. Lokun er áætluð frá kl. 17:00 - 23:00 eða á meðan vinna stendur yfir. Á heimasíðu www.no.is má sjá góð ráð við hitaveiturofi.
Lesa meira
10.09.2021
Kjörskrár í Fjallabyggð vegna Alþingiskosninga þann 25. september 2021 munu liggja frammi frá 13. september nk. til sýnis í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði og bókasafninu á Ólafsvegi 4, Ólafsfirði, á auglýstum opnunartíma skrifstofu virka daga fram til 25. september. [Meira...]
Lesa meira
09.09.2021
Miðvikudaginn 15. september 2021 gengst Fjallabyggð fyrir opnum íbúafundi í Ráðhúsi Fjallabyggðar, 2. hæð kl. 16:30.
Á fundinum verða kynnt drög að hönnun miðbæjar Siglufjarðar byggð á deiliskipulagi sem samþykkt var af bæjarstjórn Fjallabyggðar þann 13. september 2017
[Meira...]
Lesa meira
09.09.2021
Í tlefni góða veðursins ætlum við að syngja fullum hálsi á Rauðku, Siglufirði, föstudaginn 10. september kl. 17:00
Söngtextar koma upp á tjaldið svo allir geta sungið með. Hljómsveitin Singalonghópurinn heldur uppi söngstuðinu.
Rútuferð frá Ólafsfirði kl. 16:15 og aftur til baka kl. 18:45
Lesa meira
07.09.2021
Nýhafið er skólaárið 2021-2022 í Grunnskóla Fjallabyggðar. Áfram verður nemendum í 1.-4. bekk gefinn kostur á frístundarstarfi strax að loknum skólatíma kl. 13.35 - 14.35. Starfið er fjölbreytt og í samstarfi við íþróttafélög, danskennara, grunnskólann og tónlistarskólann. Nemendur eru skráðir í frístundarstarfið hálfan vetur í einu. Í undanteknum tilvikum, ef gild ástæða er til, er hægt að endurskoða skráningu 25.-27. hvers mánaðar og tæki breytingin þá gildi um næstu mánaðarmót á eftir.
Lesa meira
06.09.2021
204. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Menningarhúsinu Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði, 8. september 2021 kl. 17.00
Lesa meira
04.09.2021
Á mánudaginn 6. sept verður Eyþór Björnsson framkvæmdastjóri SSNE til viðtals í Ólafsfirði frá kl. 9 -13:00.
Þeir sem vilja bóka fund eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið eythor@ssne.is
Lesa meira
02.09.2021
Vetraropnun Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar gildir frá 4. september 2021
Opnunartímar verða sem hér segir:
Lesa meira