16.12.2022
Fjarðará í Ólafsfirði til leigu
Veiðifélag Ólafsfjarðar óskar eftir tilboðum í leigu á Fjarðará í Ólafsfirði. Um er að ræða bleikjuá þar sem með slæðist sjóbirtingur og lax. Veiðitímabil er frá 15. júlí til 20. september ár hvert. Þriðjudagar eru bændadagar.
Lesa meira
15.12.2022
Skarphéðinn Þórsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, sem var auglýst laust til umsóknar 16. nóvember sl. Átta umsóknir bárust um starfið. Skarphéðinn mun hefja störf í byrjun næsta árs og tekur við af Hauki Sigurðssyni sem lætur af störfum eftir 29 ára farsælt starf.
Lesa meira
14.12.2022
Jólagleðin leyndi sér ekki þegar flottir 4ra og 5 ára nemendur Leikskála á Siglufirði kíktu í óvænta heimsókn í Ráðhúsið í dag og sungu jólalög fyrir okkur starfsfólkið. Fengu þau öll smákökur að launum og stilltu sér upp fyrir myndatöku.
Takk fyrir þessa ánægjulegu heimsókn og gleðileg jól.
Lesa meira
13.12.2022
223. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði 15. desember 2022 kl. 17:00
Lesa meira
13.12.2022
Verkefnastjórn Norðanáttar hefur ákveðið að framlengja umsóknarfrest vegna umsókna á Fjárfestahátíð Norðanáttar á Siglufirði (Sjá auglýsingu).
Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. janúar 2023.
Lesa meira
07.12.2022
Út er komið mánaðarlegt fréttabréf SSNE fyrir nóvember 2022 - það síðasta sem kemur út á árinu en þó ekki það síðasta af árinu, en desember fréttabréfið kemur út í byrjun janúar.
Lesa meira
06.12.2022
Forsvarsmenn Síldarminjasafnsins þau Aníta Elefsen, safnstjóri, Edda Björk Jónsdóttir og Daníel Pétur Daníelsson, buðu markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar í heimsókn í Síldarminjasafnið í gær mánudaginn 5. desember.
Lesa meira
06.12.2022
Jólastemning í Iðjunni þegar bæjarstjóri leit við á dögunum
Sigríður bæjarstjóri kíkti við í Iðjuna á Siglufirði. Þar var gleðileg jólastemning, verið að baka jólasmákökur, föndra, búa til jólaskraut og jólavörur og söngurinn ómaði um allt hús. Hjá Iðjunni er hægt að kaupa ýmislegt sem ratað gæti í jólapakkann eða heim í stofu nú fyrir jólin. Íbúar og gestir eru hvattir til að kíkja við og njóta jólaandans sem þar ríkir.
Lesa meira
05.12.2022
Matvælaráðuneytið veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum matvælaráðherra.
Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga einstaklinga, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða.
Lesa meira
05.12.2022
Gjafabréfin, frá Fjallabyggð, til starfsmanna sveitarfélagsins, er hægt að nota á eftirfarandi stöðum (sjá lista hér fyrir neðan:
Þeir aðilar sem ekki eru á listanum en hafa áhuga á að taka við bréfunum vinsamlegast sendi póst þar um á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is
Lesa meira