02.11.2007
Vinnslu hefur nú verið hætt í rækjuvinnslu Ramma á Siglufirði. Um 30 manns störfuðu við rækjuvinnsluna sem hafði verið rekin með tapi um allnokkurt skeið.
Lesa meira
02.11.2007
Búið er að staðfesta dagsetningu á Nikulásarmótinu í knattspyrnu sem haldið verður á Ólafsfirði sumarið 2008, mótið verður helgina 11.-13. júlí. Nú þegar hafa 2 stór félög skráð sig á mótið.
Lesa meira
29.10.2007
Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út bækling fyrir innflytjendur með leiðbeiningum um fyrstu skrefin á Íslandi. Bæklingurinn er gefinn út á 9 tungumálum; ensku, þýsku, pólsku, rússnesku, litháensku, tælensku, serbnesku, spænsku og víetnömsku. Hægt er að nálgast bæklinginn á heimasíðu ráðuneytisins:
Your first steps in Iceland
Lesa meira
27.10.2007
Í dag skrifuðu 10 leikmenn undir 2 ára samninga við KS Leiftur. Leikmennirnir eru:
Lesa meira
26.10.2007
Undanfarin misseri hafa verið miklar framkvæmdir í Fjallabyggð. Verið er að lagfæra þak á sundhöllinni á Siglufirði, byggja við Leikhóla í Ólafsfirði, einnig hafa verið framkvæmdir á Skíðasvæðinu í Skarðsdal og í Tindaöxl.
Lesa meira
25.10.2007
Ljóðahátíðin Glóð var haldin á Siglufirði dagana 18.-20. október sl. og fyrir henni stóðu Ungmennafélagið Glói og Herhúsfélagið í samstarfi við Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Lesa meira
25.10.2007
Sjávarútvegsráðuneytið hefur auglýst breytingar á sérákvæðum vegna úthlutunar byggðakvóta í Fjallabyggð. Breytingarnar eru gerðar að beiðni bæjarráðs Fjallabyggðar og er ætlað að auka líkurnar á að það náist að uppfylla skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á tilskildum tíma.
Lesa meira
22.10.2007
Ráðgjafarfyrirtækið Alta hefur skilað af sér niðurstöðum íbúafundanna sem haldnir voru í Fjallabyggð dagana 17. og 18. september sl. Í skýrslunni eru kynntar hugmyndir, tillögur og ábendingar fundarmanna, þær teknar saman og flokkaðar eftir efni og tíðni.
Lesa meira
22.10.2007
Í tilefni af kynningarviku Rauða krossins stóð Ólafsfjarðardeild fyrir fjölmenningarkvöldi í Tjarnarborg. Um 150 manns, af níu þjóðernum, mættu á hátíðina, sem er tæplega 20% af íbúum Ólafsfjarðar.
Lesa meira
19.10.2007
Með vísan til 25. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og samþykktar bæjarstjórnar
Fjallabyggðar 16. október 2007 er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi
Þverár í Ólafsfirði, Fjallabyggð.
Lesa meira