Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag ætlar að ljúka árinu á þvi að bjóða íbúum Fjallabyggðar upp á tvö opin danskvöld sem haldin verða í Tjarnarborg sunnudagskvöldin 27. nóvember og 4. desember kl. 20:00, klukkustund í senn. Danskennarinn Ingunn Hallgrímsdóttir verður á staðnum og kennir og leiðbeinir þátttakendum. Þátttaka er endurgjaldslaus.
Dönsum inn í aðventuna, njótum samverunnar og höfum gaman saman!
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Athugið að ekki er krafist skráningu á námskeiðið en gott væri að áhugasamir skrái sig hér fyrir neðan, til hagræðingar fyrir danskennara.
Skráning