Kynningarfundur með hagsmunafélögum um deiliskipulag Hólsdals og Skarðsdals var
haldinn í ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði í gær, 22. júní.
Þar voru lagðar fram forsendur skipulagsins auk þeirra hugmynda sem mótast hafa. Tillagan er enn á vinnslustigi og eru
hagsmunafélög því hvött til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Ábendingum skal skila til tæknideildar fyrir 5. júlí 2011.
Hafa má samband við Ármann eða Ingibjörgu hjá tæknideild (sími 464-9100) eða Halldór og Lilju hjá
Teikn á lofti (sími 461-2800) til frekari upplýsinga.
Kynningarefnið má nálgast hér
http://old.teikn.is/fjallabyggd/samradsfundur.pdf
Ítarefni um fjölnota golfvelli má nálgast hér (á ensku)
http://fegga.org/main/site_flash2/documents/STERF_MULTIFUNK_EN_1_000.pdf