Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 335. fundur - 13. ágúst 2026

Málsnúmer 2608001F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 275. fundur - 25.08.2026

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 3 og 7 sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
Til máls tóku Tómas Atli Einarsson og Pálmi Blængsson.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 3 og 7 samþykkt með 7 atkvæðum.

  • .3 2606069 Aðalgata 15, umsókn um breytingu aðalskipulags.
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 335. fundur - 13. ágúst 2026 Nefndin samþykkir að hafin verði vinna við minniháttar breytingu á aðalskipulagi þar sem íbúðarhúsalóð við Aðalgötu 15 er breytt úr íbúðarhúsalóð yfir í verslunar- og þjónustulóð. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að hafin verði vinna við minniháttar breytingu á aðalskipulagi þar sem íbúðarhúsalóð við Aðalgötu 15 er breytt yfir í verslunar- og þjónustulóð.
  • .7 2603001 Fljótandi gufubað á Ólafsfjarðarvatni 2026
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 335. fundur - 13. ágúst 2026 Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

    Nefndin óskar eftir áliti heilbrigðiseftirlitsins áður en málið fer lengra.
    Bókun fundar Bæjarfulltrúi Pálmi Blængsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

    Liður 7 samþykktur með 6 atkvæðum.