- Þjónusta
- Velferð og fjölskyldan
- Menntun
- Íþróttir og tómstundastarf
- Skipulags- og byggingarmál
- Umhverfismál
- Veitur, hafnir og Þjónustumiðstöð
- Ertu að flytja í Fjallabyggð?
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Menning og söfn
- Bóka- og héraðsskjalasafn Fjallabyggðar
- Listaverkasafn Fjallabyggðar
- Menningarhúsið Tjarnarborg
- Síldarminjasafnið
- Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar
- Alþýðuhúsið á Siglufirði
- Pálshús Ólafsfirði - Náttúrugripasafn
- Ljóðasetur Íslands
- Saga Fotografica - Photo History Museum
- Herhúsið
- Gallerý og vinnustofur
- Menningarstyrkir
- Bæjarlistamaður
- Ferðaþjónusta
- Upplifðu Fjallabyggð
- Fjallabyggð fagnar þér
- Gisting í Fjallabyggð
- Veitingastaðir
- Afþreying og útivist
- Afþreying utandyra
- Golfvellir
- Gönguleiðir á Tröllaskaga
- 1 - Siglunes
- 2 - Hafnarfjall - Hvanneyrarskál
- 3 - Dalaleið
- 4 - Hestskarð til Héðinsfjarðar
- D-E - Gönguleiðir á snjóflóðagörðum (Ríplum) Siglufjarðar
- 5 - Íllviðrishnjúkur
- 7 - Rauðskörð úr Héðinsfirði - Kleifar
- 8 - Fossabrekkur frá Kleifum til Héðinsfjarðar
- 10 - Botnaleið Siglufjörður / Ólafsfjörður
- 11 - Botnaleið - Héðinsfjörður
- 12 - Siglufjarðarskarð
- 16 - Ólafsfjarðarmúli - Múlakolla
- 19 - Grímubrekkur
- 17 - Kerahnjúkur
- 18 - Drangar
- B - Ólafsfjarðarvatn
- C - Gönguleið á snjóflóðagarð ofan Hornbrekku í Ólafsfirði
- Fossdalur
- Hreppsendasúlur
- Hvanndalir
- Reykjaheiði
- Ólafsfjarðarskarð
- Skollaskál
- Sóti Lodge - gönguferðir
- Ferðafélagið Trölli
- Útsýnisflug og þyrluflug
- Vetrarafþreying
- Afþreying á sjó eða vatni
- Sóti Travel
- Skotfélag Ólafsfjarðar
- Náttúrufar og dýralíf
- Gönguleiðakort Fjallabyggðar
- Afþreying utandyra
- Viðburðir
- Áhugaverðar síður
- Norrænir vinabæir Ólafsfjarðar og Siglufjarðar
- Menning og söfn
- Þjónustugátt
- Fundagátt
Tómas Atli Einarsson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd fulltrúa D-lista:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjallabyggð leggja áherslu á að við framkvæmd og útfærslu málefnasamnings meirihlutans liggi fyrir skýr forgangsröðun, kostnaðarmat, tímasetningar og regluleg upplýsingagjöf til bæjarstjórnar og íbúa. Samningurinn hefur að geyma ýmis jákvæð markmið, en mörg þeirra eru almenns eðlis og kalla á nánari útfærslu áður en hægt er að leggja mat á raunverulega þýðingu þeirra.
Bæjarfulltrúarnir vekja einnig athygli á því að hluti þeirra verkefna sem nú eru sett fram í málefnasamningi meirihlutans voru þegar komin til meðferðar, samþykkt eða sett af stað í tíð fyrri bæjarstjórnar og fyrri meirihluta. Þar má nefna vinnu við vatnsmál, þjónustustefnu, leiksvæði og önnur verkefni sem þegar höfðu fengið formlega meðferð innan nefnda, bæjarráðs eða bæjarstjórnar.
Þá vekur athygli að opinberlega var tilkynnt um myndun meirihluta áður en fyrirliggjandi málefnasamningur var undirritaður, en samningurinn ber dagsetninguna 3. júní 2026. Það skapar misræmi milli opinberrar kynningar meirihlutans og framlagningar gagna í fundargátt og kallar á að skýrt verði hvenær samningurinn lá endanlega fyrir og hvort kjörnir fulltrúar hafi haft eðlilegt svigrúm til að kynna sér gögnin.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska sérstaklega eftir nánari skýringum á því hvað felst í hugtakinu „opið bókhald“, hvernig tryggt verði að gjaldskrá Fjallabyggðahafna sé í samræmi við veitta þjónustu og hver staða vinnu við þjónustustefnu Fjallabyggðar er.
Að lokum leggja bæjarfulltrúarnir áherslu á að við framkvæmd málefnasamningsins og í störfum meirihlutans verði gætt að reglum um hæfi, jafnræði, gagnsæi og vandaða stjórnsýslu. Sérstaklega þarf að gæta að þessu þegar sami aðili er bæði kjörinn fulltrúi og embættismaður eða starfsmaður sveitarfélagsins, eða gegnir jafnframt trúnaðar- eða fyrirsvarshlutverki gagnvart félagi, klasa eða hagsmunaaðila sem kann að fá fjárveitingar, samninga eða verkefni á vegum sveitarfélagsins. Slík staða þarf ekki sjálfkrafa að leiða til vanhæfis, en hún kallar á aukna varúð, skýr mörk milli hlutverka og formlegt mat á hæfi í hverju máli. Þetta snýst ekki um einstaklinga heldur traust, gagnsæi og trúverðugleika stjórnsýslunnar.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu styðja góð mál á kjörtímabilinu, en jafnframt veita meirihlutanum málefnalegt aðhald og krefjast skýrra gagna, ábyrgðar og vandaðrar málsmeðferðar í þágu íbúa Fjallabyggðar."
Samstarfssamningur lagður fram til kynningar.