Sveitarstjórnarkosningar 2026

Málsnúmer 2506010

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 272. fundur - 04.06.2026

Forseti gaf bæjarstjóra orðið sem fór yfir fundargerð fundar yfirkjörstjórnar sem haldinn var í Ráðhúsinu á Siglufirði þann 16.maí s.l.
Niðurstaða kosninga er sem hér segir:

Kjósendur á kjörskrá 1.555
Greidd atkvæði alls 1.202 eða 77,3% kosningaþátttaka
Gildir atkvæðaseðlar 1.177 eða 97,9% af greiddum atkvæðum
Auðir seðlar voru 21 og ógildir voru 4

Atkvæðatala framboðslista er eftirfarandi:
D-listi Sjálfstæðisflokkurinn 420 atkvæði (35,7%) og þrír kjörnir fulltrúar
H-listinn 394 atkvæði (33,5%) og tveir kjörnir fulltrúar
S-listi Jafnaðarmannafélag Fjallabyggðar og óháðir 363 atkvæði (30,8%) og tveir kjörnir fulltrúar

Kjörnir aðal- og varamenn í bæjarstjórn Fjallabyggðar eru eftirtaldir:

Aðalmenn:
Tómas Atli Einarsson (D-lista)
Helgi Jóhannsson (H-lista)
Jóhann K. Jóhannsson (S-lista)
Kristín Ágústa Eiðsdóttir (D-lista)
Kristinn Kristjánsson (H-lista)
Pálmi Blængsson (S-lista)
Guðrún Sif Guðbrandsdóttir (D-lista)

Varamenn:
Viktor Freyr Elísson (D-lista)
Stefán Júlíusson (D-lista)
Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir (D-lista)
Ásgeir Logi Ásgeirsson (H-lista)
Auður Ösp Hlíðdal Magnúsdóttir (H-lista)
Sæunn Gísladóttir (S-lista)
Guðjón Marinó Ólafsson (S-lista)

Útstrikanir höfðu ekki áhrif á röðun kjörinna fulltrúa.

Eftirfarandi útstrikanir komu fram hjá aðalmönnum og varamönnum:

Tómas Atli Einarsson (D-lista) 29 útstrikanir
Ásgeir Logi Ásgeirsson (H-lista) 12 útstrikanir
Guðjón Marinó Ólafsson (S-lista) 6 útstrikanir
Helgi Jóhannsson (H-lista) 4 útstrikanir
Kristinn Kristjánsson (H-lista) 2 útstrikanir
Guðrún Sif Guðbrandsdóttir (D-lista) 2 útstrikanir
Jóhann K. Jóhannsson (S-lista) 2 útstrikanir
Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir (D-lista) 2 útstrikanir

Nokkrar útstrikanir komu fram hjá frambjóðendum í neðri sætum.

Kjörnir fulltrúar hafa fengið tilkynningu um kjör senda.
Samþykkt
Til máls tók Tómas Atli Einarsson og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd bæjarfulltrúa D-lista:

"Sjálfstæðisflokkurinn í Fjallabyggð óskar nýkjörnum bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið og þakkar íbúum sveitarfélagsins fyrir þann stuðning og traust sem flokknum var sýnt í sveitarstjórnarkosningunum.

Sjálfstæðisflokkurinn mun á komandi kjörtímabili sinna hlutverki sínu af ábyrgð, festu og málefnalegum hætti. Við munum styðja þau mál sem við teljum þjóna hagsmunum íbúa og sveitarfélagsins best, leggja fram tillögur til úrbóta þegar tilefni er til og veita málefnalegt aðhald í meðferð mála.

Áherslur okkar á kjörtímabilinu verða meðal annars á ábyrga fjármálastjórn, gagnsæi í stjórnsýslu, vandaða málsmeðferð, skýra forgangsröðun verkefna og öfluga þjónustu við íbúa og atvinnulíf. Jafnframt leggjum við ríka áherslu á að ávallt sé gætt að reglum um hæfi, jafnræði og fagleg vinnubrögð í stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Markmið okkar er að vinna af heilindum að framgangi Fjallabyggðar, efla traust til stjórnsýslu sveitarfélagsins og stuðla að uppbyggilegri samvinnu í þágu samfélagsins alls."