Grunnskóli Fjallabyggðar - staðan og horfur við lok skólaárs 2025

Málsnúmer 2504005

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 07.04.2025

Skólastýra Grunnskóla Fjallabyggðar fer yfir starfið í grunnskólanum þegar hillir undir lok skólaárs og verkefnin framundan.
Lagt fram til kynningar
Undir þessum lið sátu Ása Björk Stefánsdóttir skólastýra grunnskólans og Brynhildur Reykjalín Vilhjálmsdóttir fulltrúi kennara. Skólastýra fór yfir skólaárið með augum nemenda í 10.bekk en hún fékk þeirra leyfi til að fara með annál bekkjarins fyrir fræðslu- og frístundanefnd. Þá kom fram í máli skólastýru að 10.bekkur vann Fjármálaleikana 2025 á landsvísu og fengu viðurkenningu að því tilefni í dag en fulltrúar Arionbanka og Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu sóttu þau heim og veittu verðlaun. Tveir nemendur 10. bekkjar fara til Brussel til að taka þátt í Evrópukeppni í fjármálalæsi þar.

Fræðslu og frístundanefnd óskar Grunnskóla Fjallabyggðar og nemendum 10. bekkjar til hamingju með glæsilegan árangur.

Skólastýra fór yfir helstu verkefni framundan eða til loka skólaárs.

Fræðslu- og frístundanefnd þakkar skólastýru og nemendum 10. bekkjar fyrir áhugaverðan annál skólaársins.