Afskrift á bókfærðu virði hlutafjáreignar í félögum

Málsnúmer 2312007

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 814. fundur - 08.12.2023

Lögð fram tillaga deildarstjóra stjórnsýlsu- og fjármáladeildar að afskriftum á bókfærðu virði hlutafjáreignar í félögum. Félögin eru annað hvort afskráð, gjaldþrota eða ekki starfandi.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir tillögu deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála um afskriftir á bókfærðu virði hlutafjáreignar í félögum sem eru hætt starfsemi, afskráð eða orðin gjaldþrota.