Afnot af félagsmiðstöðinni Neon fyrir erlenda íbúa Fjallabyggðar.

Málsnúmer 2309030

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 804. fundur - 15.09.2023

Lagt fram erindi um afnot af félagsmiðstöðinni NEON fyrir samkomu erlendra íbúa Fjallabyggðar.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við fyrirspurnina en þakkar forsvarsmönnum fyrir frumkvæðið í þessu mikilvæga samfélagsverkefni. Deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála falið að ganga frá samningi við fyrirspyrjendur.