Kaup á sértæku húsnæði

Málsnúmer 2307031

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 797. fundur - 11.07.2023

Lagt fram minnisblað deildarstjóra félagsmáladeildar og bæjarstjóra um þörf á sértækum húsnæðisúrræðum í Fjallabyggð, með áherslu á aðgengi hreyfihamlaða, með altæka hönnun að leiðarljósi þar sem tekið er mið af ólíkum þörfum íbúa. Einnig lagðir fram samningar við Verkstjórn ehf., um kaup á þremur íbúðum við Vallarbraut 4 og 6 á Siglufirði. Áætluð afhending íbúðanna er 1. júlí 2024.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlagða samninga og veitir bæjarstjóra umboð f.h. bæjarfélagsins að fullnusta þá.