Beiðni um upplýsingar vegna niðurrifs húss við Suðurgötu 49 Siglufirði

Málsnúmer 2305048

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 299. fundur - 06.06.2023

Marlis Sólveig Hinriksdóttir sendi inn erindi dags. 14.5.2023 þar sem fjallað er um umsókn byggingarleyfis fyrir endurbyggingu húss við Suðurgötu 49. Jafnframt var óskað eftir upplýsingum um málsmeðferð umsóknar um byggingarleyfi til að rífa fasteignina Suðurgötu 49 auk afrits af starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin felur tæknideild að svara erindinu.