Reglubundið eftirlit Umhverfisstofnunar með móttökuaðstöðu fyrir úrgang í höfnum Fjallabyggðar

Málsnúmer 2305017

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 137. fundur - 10.05.2023

Í samræmi við 5. gr. reglugerðar nr. 1200/2014 um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum, er komið að reglubundnu eftirliti með móttökuaðstöðu fyrir úrgang í Fjallabyggðahöfnum. Áætlað er að eftirlitið fari fram þann 23. maí kl. 9:00.
Lagt fram til kynningar.