Hafnir Dalvíkurbyggðar, beiðni um kaup á vinnuframlagi.

Málsnúmer 2301012

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 133. fundur - 09.01.2023

Lagt fram erindi frá Dalvíkurbyggð vegna afleysinga á höfnum Dalvíkurbyggðar.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við yfirhafnarvörð.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 134. fundur - 25.01.2023

Búið er að ganga frá samkomulagi um kaup á vinnuframlagi hafnarstarfsmanna Fjallabyggðarhafna vegna afleysingu á bakvakt þriðju hverja helgi til 31. mars 2023 á höfnum Dalvíkurbyggðar.
Hafnarstjórn samþykkir framlagða tilhögun.