Ráðning í starf forstöðumanns íþróttamannvirkja

Málsnúmer 2211104

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 119. fundur - 14.12.2022

Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála kynnir fundarmönnum niðurstöðu ráðningar í stöðu forstöðumanns Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar.
Samþykkt
Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála fór yfir ráðningarferli vegna ráðningar í stöðu forstöðumanns Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar. Starf forstöðumanns var auglýst 16. nóvember 2022 á vef Fjallabyggðar, á alfred.is og trolli.is, í Tunnunni og Fréttablaðinu. Umsóknarfrestur um starfið var til og með 30. nóvember sl. Átta umsækjendur voru um starfið.
Deildarstjóri kynnti nefndinni þá niðurstöðu að ráða Skarphéðinn Þórsson í starfið. Fræðslu- og frístundanefnd býður Skarphéðinn velkominn til starfa.