Bæjarráð Fjallabyggðar - 770. fundur - 28. nóvember 2022.

Málsnúmer 2211018F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 222. fundur - 30.11.2022

Fundargerð bæjarráðs er í 7 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 1, 2, 3, 4 og 5.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

Sigríður Guðrún Hauksdóttir tók til máls undir lið nr. 2.
  • .1 2211119 Fjárhagsáætlun, gjaldskrá 2023 og kostnaðarskipting sveitarfélaga í rekstri TÁT 2023
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 770. fundur - 28. nóvember 2022. Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkir fyrir sitt leyti tillögu skólanefndar TÁT og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • .2 2204013 Erindi frá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar vegna aðstöðuleysis.
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 770. fundur - 28. nóvember 2022. Þar sem KF hefur ekki aðstöðu til að stunda æfingar innan sveitarfélagsins að vetri til er lagt til að styrka félagið um allt að kr. 1.700.000, gegn framvísun reikninga á útlögðum kostnaði vegna leigu á æfingaaðstöðu. Bókun fundar Forseti bæjarstjórnar bar upp eftirfarandi tillögu að bókun:
    Deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála er falið að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun 2022 vegna útgreiðslu styrksins og leggja fram á næsta fundi bæjarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • .3 2210020 Grænir styrkir - umhverfisstyrkir Fjallabyggðar 2023
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 770. fundur - 28. nóvember 2022. Bæjarráð samþykkir að úthluta kr. 2.750.000 til grænna styrkja á árinu 2023. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • .4 2211108 Umsókn um stöðuleyfi fyrir bráðabirgða golfskála
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 770. fundur - 28. nóvember 2022. Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Fjallabyggðar stöðuleyfi fyrir bráðabirgða golfskála. Bæjarráð samþykkir einnig að veita félaginu styrk að andvirði stöðuleyfisgjaldsins. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • .5 2210053 Umsagnarbeiðni - Kráarkvöld í Hornbrekku
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 770. fundur - 28. nóvember 2022. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn vegna tækifærisleyfis til áfengisveitinga í Hornbrekku sbr. umsókn Hornbrekku til Sýslumannsins á Norðurlandi eystra. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.