Beiðni um stuðning við EUCHIS 2023

Málsnúmer 2210049

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 769. fundur - 24.11.2022

Lögð fram styrkbeiðni undirbúningsnefndar og skipuleggjenda EUCHIS 2023 vegna fyrirhugaðrar ráðstefnu Evrópsku Kítinsamtakanna, EUCHIS 2023, á Siglufirði 11.-14. september 2023. Óskað er eftir að bæjarstjórn Fjallabyggðar styðji við framkvæmd ráðstefnunnar með því að bjóða ráðstefnugestum til síðdegismóttöku í upphafi ráðstefnunnar þann 11. september 2023 og standa fyrir kostnaði vegna þess.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að styðja við framkvæmd ráðstefnunnar með þátttöku í kostnaði við móttöku gesta, kr. 500.000.