Leikskóli Fjallabyggðar. Niðurstöður starfsmannakönnunar Skólapúlsins 2022

Málsnúmer 2206022

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 112. fundur - 13.06.2022

Starfsmannakönnun Skólapúlsins í Leikskóla Fjallabyggðar fór fram í mars sl.
Lagt fram til kynningar
Undir þessum lið sátu Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar og Fanney Jónsdóttir fulltrúi starfsmanna.
Skólastjóri fór yfir helstu niðurstöður starfsmannakönnunar. Fram kom misræmi í niðurstöðum könnunar og opnum svörum frá starfsmönnum sem stjórnendur munu rýna betur.