Ungmennaþing 2022 - Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)

Málsnúmer 2204081

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 32. fundur - 25.05.2022

Ungmennaþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra verður haldið á Dalvík 13-14 október nk.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 33. fundur - 02.11.2022

Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála fór yfir dagskrá Ungmennaþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE).
Lagt fram til kynningar
Umræða skapaðist um ungmennaþingið sem haldið var á Dalvík 13.- 14. október sl. Fjögur ungmenni sóttu þingið fyrir hönd Fjallabyggðar og eru þau sammála um að þingið var vel heppnað, fræðandi og skemmtilegt.