Bæjarráð Fjallabyggðar - 731. fundur - 24. febrúar 2022.

Málsnúmer 2202010F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 211. fundur - 09.03.2022

Fundargerð bæjarráðs er í 9 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 1, 2, 4 og 5.

Enginn tók til máls.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.
  • .1 1908063 Reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningarmála
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 731. fundur - 24. febrúar 2022. Bæjarráð samþykkir framlögð drög að breyttum reglum um úthlutun styrkja til menningarmála og vísar þeim til bæjarstjórnar til samþykktar eða synjunar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum framlögð drög að breyttum reglum um úthlutun styrkja til menningarmála.
  • .2 2202042 Lánsumsókn vegna snjóflóðavarna 2019-2021
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 731. fundur - 24. febrúar 2022. Bæjarráð samþykkir framlagða lánsumsókn og felur deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að senda lánsumsóknina til Ofanflóðasjóðs. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum framlagða lánsumsókn til Ofanflóðasjóðs.
  • .4 2202017 Launayfirlit tímabils - 2022
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 731. fundur - 24. febrúar 2022. Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka nr. 1/2022 við fjárhagsáætlun 2022 sbr. meðfylgjandi fylgiskjal að fjárhæð kr. 4.511.015.- og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs og viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2022 að upphæð kr. 4.511.015.- sem mætt verður með lækkun á handbæru fé vegna breytinga á tryggingargjaldi og dreifist viðaukinn því heilt yfir málaflokka og deildir þar sem laun reiknast.
  • .5 2202047 Viðauki við fjárhagsáætlun 2022
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 731. fundur - 24. febrúar 2022. Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka nr. 2/2022 við fjárhagsáætlun 2022 að fjárhæð kr. 2.806.587.- og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs og viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2022 að upphæð kr. 2.806.587.- sem mætt verður með lækkun á handbæru fé vegna nýs starfsmats.