Bæjarráð Fjallabyggðar - 721. fundur - 25. nóvember 2021.

Málsnúmer 2111015F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 207. fundur - 01.12.2021

Fundargerð bæjarráðs eru í 12 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 1, 4, 7, 8 og 12.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

Enginn tók til máls.
  • .1 2111047 Útboð á ræstingu í Leikskóla Fjallabyggðar
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 721. fundur - 25. nóvember 2021. Bæjarráð samþykkir ósk um heimild til útboðs og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála að auglýsa verkið. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • .4 2111052 Ósk um viðauka vegna komu varðskipsins Freyju
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 721. fundur - 25. nóvember 2021. Bæjaráð samþykkir viðauka nr. 28/2021 að fjárhæð kr. 9.500.000.- sem verður mætt með lækkun á handbæru fé og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • .7 2101003 Erindum vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2022
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 721. fundur - 25. nóvember 2021. Bókun fundar Tómas Atli Einarsson víkur undir lið 5.7.19 og Helgi Jóhannsson víkur undir lið 5.7.12.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs en liður 5.7.12 samþykkur með 6 atkvæðum og liður 5.7.19 samþykkur með 6 atkvæðum.
  • .8 2104082 Áfangastaðastofa
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 721. fundur - 25. nóvember 2021. Bæjarráð samþykkir framlögð samningsdrög og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • .12 2101002 Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2021
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 721. fundur - 25. nóvember 2021. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.