Haustfundur ferðaþjónustu, menningar og afþreyingar í Fjallabyggð 2021

Málsnúmer 2108040

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 78. fundur - 02.09.2021

Undanfarin ár hefur markaðs- og menningarnefnd staðið fyrir haustfundi ferðaþjónustu-, menningar- og afþreyingaraðila í Fjallabyggð. Nefndin fyrirhugar að halda slíkan fund í október og felur markaðs- og menningarfulltrúa að koma með hugmynd að dagskrá og skipulagi fundarins.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 79. fundur - 07.10.2021

Lagt fram
Haustfundur ferðaþjónustu, menningar og afþreyingar 2021 verður haldinn 12. október nk. kl. 17:00 í Tjarnarborg. Markaðs- og menningarfulltrúi fór yfir dagskrá fundarins.