Gervigrasvöllur í Ólafsfirði

Málsnúmer 2011012

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17.11.2020

Lagt fram erindi Þorsteins Sigursveinssonar fh. stjórnar Knattspyrnufélags Fjallabyggðar, dags. 26.10.2020 þar sem stjórn óskar eftir upplýsingum um hvenær hafist verður handa á byggingu gervigrasvallar.

Bæjarráð þakkar erindið og vill koma því á framfæri að vinna við fjárhagsáætlun og framkvæmdaráætlun ársins 2021 stendur enn yfir. Ákvörðun um byggingu gervigrasvallar liggur ekki fyrir að svo stöddu.