Endurskoðun á siðareglum bæjarfulltrúa

Málsnúmer 2010075

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 672. fundur - 23.10.2020

Lagt fram erindi Ingibjargar Guðlaugar Jónsdóttur, forseta bæjarstjórnar, dags. 21.10.2020 þar sem lagt er til að Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Fjallabyggð verði endurskoðaðar í samræmi við lög þar um.

Lagðar fram Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Fjallabyggð frá nóvember 2011.

Bæjarráð samþykkir að Siðareglur bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Fjallabyggð verði endurskoðaðar og felur bæjarstjóra að vinna tillögu að verklagi við endurskoðun og leggja fyrir bæjarráð.