Umsókn um leyfi fyrir svölum að Aðalgötu 19 á Siglufirði

Málsnúmer 2008026

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 257. fundur - 26.08.2020

Með bréfi, dagsettu 6. ágúst 2020, óskar Ragnar Már Hansson eftir leyfi til að fá að setja svalir á suðurhlið Aðalgötu 19 á Siglufirði og brunastiga frá 2. hæð. Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands sem tók jákvætt í erindið.
Nefndin samþykkir erindið með fyrirvara um að skriflegt samþykki berist frá aðliggjandi lóðarhöfum fyrir svölunum.