Niðurrif á fjárhúsum að Bakka í Ólafsfirði

Málsnúmer 2008015

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 257. fundur - 26.08.2020

Með tölvupósti, dagsettum 13. ágúst 2020, óskar Eyþór Eyjólfsson eftir leyfi til þess að rífa 122,9 fm fjárhús að Bakka í Ólafsfirði, en þau eru orðin fúin og ólíkleg til að standa af sér annan vetur.
Erindi samþykkt.