Uppskrift að góðum degi í Fjallabyggð

Málsnúmer 2005029

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 651. fundur - 14.05.2020

Lagt fram erindi Maríu Bjarkar Ingvadóttur fh. N4, dags. 06.05.2020 þar sem sveitarfélaginu er boðið að kynna Fjallabyggð í þáttaröð sem N4 er að gera og nefnist „Uppskrift að góðum degi“ og fjallar um hvernig hægt er að njóta dagsins í Fjallabyggð og unnið stutt kynningarefni sem sveitarfélagið og aðrir hagsmunaaðilar geta sett á heimasíður sínar eða aðra samfélagsmiðla. Kostnaður er kr. 1.000.000.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn markaðs- og menningarfulltrúa.