Norðurlands Jakinn 2020

Málsnúmer 2005028

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 651. fundur - 14.05.2020

Lagt fram erindi Magnúsar Vers Magnússonar fh. félags Kraftamanna, dags. 06.05.2020 þar sem fram kemur að stefnt sé að því að halda aflraunamótið Norðurlands jakann dagana 28.-30. ágúst nk. á norðurlandi. Sveitarfélaginu er boðið að taka þátt og óskað eftir styrk í formi gistingar, aðgangs í sund og máltíðar auk peningastyrks að upphæð kr. 200.000.

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála þar sem fram kemur að sveitarfélagið tók þátt árið 2018.

Bæjarráð þakkar erindið en samþykkir að sitja hjá að þessu sinni.