Þjónustusamningar vegna kortasjár og kortagrunna

Málsnúmer 2005020

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 651. fundur - 14.05.2020

Lögð fram drög að þjónustusamningum um kortasjár og kortagrunn við Loftmynd. Kortasjá er lykill að aðgengi íbúa að ýmsum upplýsingum á heimasíðu sveitarfélagsins, t.d. teikningum af húsum, legu vatnsveitu, fráveitu og lóðarmarka. Kortagrunnur er uppfærsla á loftmyndum af þéttbýlinu.
Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar að undirrita þjónustusamningana fyrir hönd sveitarfélagsins. Kostnaður rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2020.