Starfið fram að lokum skólaárs í Leikskóla Fjallabyggðar 2020

Málsnúmer 2004074

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 85. fundur - 04.05.2020

Undir þessum lið sátu Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar og Fanney Jónsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskólans. Skólastjóri leikskólans fór yfir stöðuna í leikskólanum og hvernig starfið er hugsað framundan en ljóst er að ýmsir liðir í hefðbundnu vorstarfi verða með öðrum hætti en fyrri ár.