Bærinn minn Fjallabyggð - Ný þáttaröð á Hringbraut

Málsnúmer 2004033

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 651. fundur - 14.05.2020

Lagt fram erindi Ólafs Snorra Helgasonar fh. Hringbrautar Fjölmiðils, dags. 07.05.2020 þar sveitarfélaginu er boðið að kynna Fjallabyggð í nýrri þáttaröð sem fer af stað í lok maí og kallast „Bærinn minn“.
Þættirnir verða átta talsins og verður fjallað um eitt bæjarfélag í hverjum þætti, auk þess verða þættirnir auglýstir á öllum miðlum Torgs ( Fréttablaðinu, DV, frettabladid.is, hringbraut.is, dv.is og Hringbraut). Innifalið í pakkanum er m.a. sjónvarpsþáttur, handritsgerð, kynningarmyndbönd og fl.. Kostnaður er kr. 1.000.000.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn markaðs- og menningarfulltrúa.