Endurnýjun umsóknar um stöðuleyfi fyrir bátinn Freymund

Málsnúmer 2002059

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 251. fundur - 26.02.2020

Undir þessum lið vék Helgi Jóhannsson af fundi.
Lagt fram erindi Helga Jóhannssonar dags. 24.02.2020 þar sem óskað er eftir framlengingu stöðuleyfis fyrir bátinn Freymund ÓF frá 24.02.2020 - 01.05.2021 við Strandgötu 17 í Ólafsfirði.
Erindi samþykkt.